|
Til foreldra og forráðamanna nemenda í Víkurskóla.
Skólasetning og námsefniskynning verður í grunnsskólanum mánudaginn 23. 8. 2010 kl 10.
Nú liggur fyrir hverjir verða umsjónarkennarar í grunnskólanum:
1.-2.b. Þorgerður Hlín Gísladóttir
3.-4.b. Kolbrún Ósk Guðjónsdóttir
5.-6.b. Kolbrún Hjörleifsdóttir
7.-8.b. Sif Hauksdóttir (frá 1.12. 2010, fram að því Kristín Marti)
9.-10.b. Victoria Jónsson
Gunnar Halldórsson (samfélagsfræði og enska), Kristín Marti (list- og verkgreinar, upplýsingamennt), Símon Waagfjörð (smíði) og Katrín Waagfjörð (íþróttir) og Anna Björnsdóttir (danska og kór) verða einnig við kennslu næsta skólaár.
Björgunarsveitin Víkverji verður með valnámskeið (nýliðanámskeið) sem valgrein fyrir 8.-10.b. á 1. og 3. önn næsta skólaárs.
Skólahreysti verður valgrein í 5. - 10. b. allan veturinn.
Mikil áhersla verður lögð á list- og verkgreinar og munum við m.a. byrja skólaárið með listnámskeiði þar sem gestakennarar frá Slóvakíu koma í heimsókn (24.-27.8.) - nánar kynnt er nær dregur.
Kristinn J. Níelsson og Kári Gestsson verða með tónskólann.
Hjördís Rut Jónsdóttir verður deildarstjóri í Suður-Vík frá 1.9. 2010 en þá fer Halla Ólafsdóttir í námsleyfi. Unnið er að því hörðum höndum að fá leikskólakennara til starfa þar næsta skólaár.
Frekari fregnir verða settar á heimasíðuna þegar við á en nú tekur við sumarleyfi. Það er einlæg von okkar í skólanum að sumarið verði gott og að allir komi endurnærðir til starfa í haust.
Kær kveðja
Maggi.....
|