|
Dagur tónlistarskólanna á Íslandi. |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Þriðjudagur, 16. febrúar 2010 11:04 |
|
Dagur tónlistarskólanna á Íslandi er laugardagurinn 27. febrúar 2010. Tónskólinn okkar mun að sjálfsögðu taka þátt í að halda upp á hann og verða sérstakir tónleikar í Leikskálum vegna þessa tilefnis. Allar nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur. |
|
|
Nemendur Suður-Víkur í íþróttum. |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Þriðjudagur, 16. febrúar 2010 09:44 |
|


Þau Sædís, Auðunn Adam, Hákon og Urður Ósk tóku sér hlé frá æfingum og stilltu sér upp í myndatöku en mikil áhersla er lögð á hreyfingu í námskrá leikskóladeildar Víkurskóla. Þau Martina og Þorgils sáu um að raða upp og stjórna tímanum.
|
|
Bolludagur - góður gestur kom með bollur. |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Mánudagur, 15. febrúar 2010 09:34 |
|

Victoria Jonsson kom færandi hendi í Víkurskóla í morgun en meðferðis hafði hún bollur handa öllum nemendum og starfsfólki skólans. Victoria er í leyfi frá kennslu þetta skólaárið en kemur aftur til starfa í haust. Fyrir hönd allra í Víkurskóla segjum við - kærar þakkir !
Meðfylgjandi mynd sýnir þau mæðgin Victoriu og yngsta soninn, Olof Jóhann Ísólf Karlsson sem hjálpaði mömmu við baksturinn, að eigin sögn.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 16. febrúar 2010 11:37 |
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Föstudagur, 12. febrúar 2010 11:41 |
|

Í morgun fengu elstu nemendur Víkurskóla (9. og 10. b.) kynningu og fyrirlestur um alþjóðlegu skiptinemasamtökin AFS. Það voru þær Þórhildur og Þyri frá Hornafirði sem heimsóttu okkur og leiddu okkur í allan sannleika um þennan möguleika sem stendur unga fólkinu okkar til boða.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 12. febrúar 2010 14:56 |
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Mánudagur, 08. febrúar 2010 18:52 |
|
Nemendur í Suður-Vík standa nú fyrir listsýningu í Arion banka í Vík. Sýningin opnaði með viðhöfn kl 14 í dag og eru allir hvattir til að kíkja við og skoða herlegheitin en sýningin stendur út febrúar. |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 10. febrúar 2010 09:08 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 23 24 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |