|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Mánudagur, 17. maí 2010 13:54 |
Kæru foreldrar / forráðamenn, nemendur og starfsfólk.
Skólastjórnendur, form. Skólanefndar og fulltrúi úr Skólaráði Víkurskóla komu saman á fundi nú í morgun og var eftirfarandi ákveðið (sjá nánar í töskupósti og viðhengi sent í Mentor):
Prófdagar 5.-10.b. eru miðvikudagurinn 19. maí, fim. 20. og föstudagurinn 21. maí 2010 - tvö próf á dag. Skólaferðalag 7.-10. b. á Suðurnes (tveggja nátta gisting) verður 26. - 28. maí nk. Skólaslit í Leikskálum miðvikudaginn 2. júní kl 17. Að öðru leyti en þessu eru nemendur 7. - 10.b. ekki í skólanum meira þetta skólaárið. 5. og 6. bekkur eru hins vegar í skólanum 26.-31.5. líkt og yngri nemendur skólans. Heimferð 18.5. - 21.5.: 5.-10.b. kl 12:15 , 1.-4.b. kl 14:00. Heimferð 26.5. - 27.5. : 1.-6. b. kl 14: 00 Heimferð 28.5. 1.-6.b. verður eftir ferð á Kirkjubæjarklaustur (um kl 14)
Við höfum undanfarnar vikur mátt búa við töluvert rót á okkar skólastarfi eins og allir hafa upplifað. Mikil nauðsyn er nú á að klára námsmat hjá þeim eldri sem og raska sem minnst starfinu hjá þeim yngri. Við erum líka að búa í haginn að taka að hluta eða öllu leyti börnin frá Suður-Vík niður eftir í grunnskólann ef til öskufalls kemur sem lamar starfsemi leikskólans, hindrar útiveru o.þ.h.
Þetta er afar erfiðar ákvarðanir að taka, engin ráð beinlínis góð og næsta víst er að þetta bitnar á einhverjum. Það er einlæg von undirritaðs að fólk sýni þessu skilning þar sem aðstæður eru og hafa verið með þeim hætti að nánast allt sem aflaga getur farið hefur gert það með einum eða öðrum hætti.
Með vinsemd og virðingu
Maggi.....
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 17. maí 2010 13:54 |
|
|
Myndir frá skemmtiferð til Reykjavíkur. |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Laugardagur, 15. maí 2010 16:58 |
|
Nú eru komnar myndir af skemmtiferð grunnskólans til Reykjavíkur - bara að smella á myndir . Eftirtaldir aðilar eiga þakkir skildar og hlýhug fyrir að gera þessa ferð ógleymanlega:
TREX - rútufyrirtækið
Nemendur og starfsfólk Vallaskóla á Selfossi
Ragnar S. Ragnarsson sálfræðingur hjá Skólaskrifstofu Suðurlands
Starfsfólk Ylstrandarinnar í Nauthólsvík
Latibær
KFC í Hafnarfirði
Rauði Kross Íslands sem sá um skipulag að mestu og hélt utan um dagskrána
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Laugardagur, 15. maí 2010 16:02 |
|
Foreldrar barna í Suður-Vík vinsamlega athugið:
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna neyðumst við til að
fresta Sumarhátíð leikskólans sem átti að fara fram
sunnudaginn 16. maí 2010.
Stjórnendur. |
|
Síðast uppfært: Laugardagur, 15. maí 2010 16:02 |
|
Skemmtiferð til Reykjavíkur í boði Rauða kross Íslands ! |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Miðvikudagur, 12. maí 2010 13:49 |
|
Kæru nemendur foreldrar/forráðamenn!
Rauði krossinn býður öllum nemendum grunnskóladeildar Víkurskóla í skemmtiferð til Reykjavíkur föstudaginn 14. maí. Farið verður frá Víkurskóla kl. 10 f. h. Venjulegur skólaakstur, byrjað að safna í bílana kl. 9:20. Dagskrá verður eftirfarandi: * kl. 12 - 13 tekið á móti hópnum í Nauthólsvík, hádegisverður * " 13 - 14 leikir og fjör með sjálfboðaliðum Rauða krossins * " 14 - 15:30 hægt að velja um að fara í sjósund, heitan pott eða fara í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn * " 15:30 - 17:30 létt hressing * " 16:00 - 17:30 fara í heimsókn í Latabæ
Áætluð heimkoma um kl 20:30
Við leggjum mikla áherslu á að þeir nemendur sem eru ekki á staðnum núna geti hitt okkur í Reykjavík og er foreldrum / forráðmönnum þeirra barna bent á að hafa samband við undirritaða.
Þessi ferð er nemendum að kostnaðarlausu að mestu - rétt að taka með sér skotsilfur fyrir nammi o.þ.h.
Krakkarnir þurfa að taka með sér sundföt, handklæði og hlý föt.
Þeir foreldrar / forráðamenn sem vilja koma með eru vinsamlega beðnir um að láta undirritaða vita hið fyrsta.
Víkurskóli vill þakka Rauða krossinum sérstaklega fyrir þetta höfðinglega framtak sem sannarlega kemur á góðum tíma fyrir okkur hér og að auki öðrum sem að þessu hafa komið. Þetta er slíkur hlýhugur og kærleikur í garð okkar að orð megna vart að lýsa þakklæti okkar.
Bestu kveðjur, Anna og Maggi
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. maí 2010 14:41 |
|
Sumarhátíð leikskólans 15. maí í Leikskálum ! |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Miðvikudagur, 12. maí 2010 12:19 |
|
Sumarhátíð leikskólans kl 14 í Leikskálum
sunnudaginn 16. maí.
Fjölmennum og fögnum sumri með
krökkunum í Suður-Vík . |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. maí 2010 14:07 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |