|
Foreldrar / Forráðamenn athugið ! |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Þriðjudagur, 11. maí 2010 20:07 |
|
Skólastjórnendur fara þess á leit við foreldra / forráðamenn að þeir fylgist vel með fréttum í fyrramálið (12.5.2010) um skólahald. Mikið öskufall hefur dunið yfir Vík nú síðustu klukkustundir og sér ekki fyrir endann á því. Allt kapp er lagt á að skólahald verði með eðlilegum hætti í leik-, tón- og grunnskóla á morgun en reynslan kennir okkur að vera viðbúin og á verði. Við bíðum og vonum að ekki þurfi að koma til lokunnar því við erum mjög meðvituð um gildi þess að daglegt líf barnanna okkar raskist ekki meira en orðið er. Vinsamlega hafið kveikt á útvarpi, tölvum og ef minnsti vafi er í huga ykkar kæru foreldrar / forráðamenn þá ekki hika við að hafa samband. Einnig er rétt að benda á að slóðin að mælingum á svifryki í Vík er http://kort.vista.is - munið bara að lesa þær leiðbeiningar sem þar fylgja um upplýsingar af þessu tagi en vel var farið yfir þær á íbúafundi hér í gærkvöldi.
Saman munum við sigrast á þessu !
Maggi..... |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. maí 2010 20:19 |
|
|
Hreinsunarstarf 11.5.2010 |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Þriðjudagur, 11. maí 2010 12:04 |
|

Leiksvæði grunnskólans vökvað.

|
|
Sól úti, sól inni - sól í sinni ! |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Þriðjudagur, 11. maí 2010 10:56 |
|

Fallegur og bjartur dagur hjá okkur í Víkurskóla og kominn tími til. Krakkarnir á Suður-Vík nutu þess að komast út og leiks sér í blíðunni og ekki spillti fyrir að gæði andrúmsloftsins voru góð ! Við skulum vona að þetta sé það sem koma skal enda komið nóg af hinu. Þess ber að geta að útisvæði eru þrifin og vökvuð reglulega og allt gert til að lágmarka rykmengun eins og kostur er. Ökumenn eru sérstaklega minntir á að takmarka örkuhraða í nágrenni skólanna því mikill hraði eykur rykmyndun ! Höldum áfram að taka á því saman að gera aðstæður eins góðar og hægt er - það er svo margt sem við getum gert og öllum líður betur fyrir vikið.
|
|
Skólahald fellur niður 10.5. 2010 ! |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Sunnudagur, 09. maí 2010 17:46 |
|
Kæru nemendur og foreldrar / forráðamenn.
Vegna þess mikla öskufalls sem gekk yfir okkur um helgina þá verðum við að fella niður skólahald í grunn-, leik- og tónskóla mánudaginn 10. maí. Þetta eru þung spor að stíga en í ljósi aðstæðna þau einu réttu. Við stöndum frammi fyrir því að þurfa að þrífa allt hátt og lágt, sérstaklega í grunnskólanum og svo má ekki gleyma því að lítið má út af bregða í veðráttu til að aðstæður verði okkur mjög óhagstæðar vegna þess mikla magns af öskuryki sem er hér allt í kring. Öruggt umhverfi barnanna setjum við alltaf á oddinn og því er þessi ákvörðun tekin.
Undirritaður hvetur starfsfólk og þá sem geta lagt lið að koma á morgun í grunnskólann og hjálpa til við þrif, ekki er vanþörf á því. Saman getum við sigrast á erfiðleikum sem þessum.
Við stefnum á að skólastarf í Víkurskóla verði með eðlilegum hætti þriðjudaginn 11. maí.
Með mínum allrabestu kveðjum
Maggi..... |
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Föstudagur, 07. maí 2010 10:28 |
|
Ráðgert var að síðasta samvera Íþróttaskólans yrði á morgun, laugardaginn 8. maí, en í ljósi aðstæðna þá getur ekki orðið af því !
Íþróttaskólinn vill þakka öllum sem tóku þátt sl vetur og vonandi verða mörg og góð tækifæri framundan í sumar til að hreyfa sig og njóta þess.
Íþróttaskólinn tekur svo upp þráðinn aftur næsta haust .
Kær kveðja
Maggi..... |
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 07. maí 2010 10:29 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |