|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Miðvikudagur, 21. apríl 2010 10:01 |
|
Það er að mörgu að huga þegar birtir til bæði úti við og eins líka í sinni. Eitt af því er að tæma sundlaugina sem hefur fengið sinn skerf af öskuryki síðustu daga. Þeir félagar Sævar Kristjánsson og Ívar Guðnason gengu í það verk og ef allt gengur upp þá gæti hún opnað aftur um og eftir helgi.

|
|
|
Gott að komast í skólann ! |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Miðvikudagur, 21. apríl 2010 09:50 |
|
Börnin á Suður-Vík voru greinilega ánægð að komast aftur í leikskólann sinn eins og meðfylgjandi myndir sýna. Í dag er hið besta veður og snjórinn sem féll í gær gerir það að verkum að allt lítur bærilega út og rykmyndun er lítil sem engin - við skulum njóta þess !


|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 21. apríl 2010 09:51 |
|
Sumarhátíð Leikskólans frestað ! |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Þriðjudagur, 20. apríl 2010 16:23 |
|
Vegna óviðráðanlegra orsaka verðum við að fresta Sumarhátíð Leikskólans Suður-Víkur um óákveðinn tíma. Hún verður því ekki fimmtudaginn 21.apríl eins og til stóð. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 20. apríl 2010 16:24 |
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Þriðjudagur, 20. apríl 2010 14:40 |
|
Leikskólinn tók til starfa kl 11:30 og hefur starfsemin gengið vel en 19 börn komu til dvalar í dag. Starfsfólk hafði góða stund í morgun til að ráða ráðum sínum og m.a. yfirfara með deildarstjóra gátlista sem gott er að geta gripið til þegar aðgæslu er þörf. Þetta er efni sem við fengum frá Skólaskrifstofu Suðurlands sem brást vel við beiðni okkar um aðstoð.
Mikið verk hefur verið unnið í grunn- og tónskóla í dag og hafa starfsmenn og kennarar unnið vel í því að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að skólahald geti verið með eðlilegum hætti á morgun, miðvikudag. Kennarar voru með fund í morgun þar sem viðbrögð við kvíða og ótta hjá börnum voru sérstaklega rædd en þetta er höfuðviðfangsefni okkar við þessar aðstæður. Við höfum verið í góðu sambandi við starfsfólk Skólaskrifstofunnar líkt og hvað varðar leikskólann, fengið leiðbeiningar þaðan og ber að þakka fyrir það. Fagaðilar frá Skólaskrifstofunni eru svo væntanlegir hingað nk mánudag til frekara samstarfs. Það ríkir mikill einhugur hér í Víkurskóla og allir eru tilbúnir að gera sitt besta svo við komumst fljótt og vel yfir þennan erfiða hjalla sem litar líf okkar núna sterkum litum.
Við bíðum nú fregna af komandi vindátt og vonum það besta. Grunnskólinn hefur verið þéttur eins og framast er unnt og rykgrímur eru til staðar hér og í skólabílum ef þörf krefur. Það er mjög mikilvægt að vara sig á hinu hárfína öskuryki sem getur með litlum fyrirvara rokið upp og ættu allir að hafa rykgrímu tiltæka. Því má svo bæta við að við tökum afstöðu til útiveru (s.s. í frímínútum eða á útileiksvæðum) byggða á þeim upplýsingum sem liggja fyrir þá stundina - í engu verður vikið frá eðlilegum og sjálfsögðum kröfum um öryggi og velferð nemenda. Svo má geta þess að oft getur verið einfaldara að fá yngri börn til að hafa svokölluð "buff" eða höfuð-/hálsklúta fyrir vitunum sem einnig gera mikið gagn gegn rykinu !
Því miður hefur það komið upp á að svo virðist sem ekki allir hlusti á tilkynnningar í útvarpi (RUV - rás 2) nú eða kveiki ekki á tölvunni í morgunsárið og fái fyrir vikið ekki tilkynningar ef um er að ræða skyndilegar breytingar á skólahaldi. Undirritaður vill beina eindregnum tilmælum til allra að hlusta á útvarpið við þessar kringumstæður og ekki hika við að hafa samband við skólann ef eitthvað er ekki eins og á að sér að vera.
Við þessar aðstæður finnum við vel fyrir smæð okkar en einnig hvers við erum megnug þegar allir leggjast á eitt - munum að láta hvert annað vita ef eitthvað bjátar á, ef grunsemdir vakna um vanlíðan o.þ.h. Við munum saman yfirstíga það sem framundan er og verða sterkari fyrir vikið.
Mínar allrabestu kveðjur
Maggi.....
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 20. apríl 2010 14:49 |
|
Skólahald í grunnskóla, tónskóla og leikskóla 20.4.2010 |
|
|
|
|
Skrifað af: Skólastjóri
|
|
Mánudagur, 19. apríl 2010 20:27 |
|
Kæru foreldrar / forráðamenn , nemendur og starfsfólk.
Grunnskóli og tónskóli: Skólahald fellur niður hjá nemendum. Eftir athugun á húsnæði reynist ekki unnt að halda úti kennslu á morgun - hér er lag af fíngerðu öskuryki yfir öllu og verður hafist handa að þrífa það í fyrramálið. Starfsfólk mætir kl 09 en kennarafundur er áætlaður kl 10. Nauðsynlegt er að kennarar fái andrúm til að setjast niður og gera áætlanir í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru. , sérstaklega þar sem framvindan er nokkuð óljós - er þá átt við öskufall, veðurspár o.þ.h.
Leikskóli: Opnar kl 11:30 í fyrramálið.
Þessar upplýsingar eru settar fram með þeim fyrirvara að ekki komi til frekara öskufalls eða vindátt verði óhagstæð og veður vont.
Kæru foreldrar/forráðamenn, nemendur og starfsfólk. Það er óþarft að tíunda þá erfiðleika sem þessar hamfarir hafa haft í för með sér. Hugur okkar allra er hjá þeim sem eiga um sárt að binda og við skulum gefa börnum okkar góðar gætur því oft leynast áhyggjur þó ekki sýnilegar séu. Það gerum við best með samræðum og nærveru. Munum líka eftir því að ýmis samtök eins og Rauði krossinn bjóða upp á góð ráð (sjá www.rki.is) en best er að að geta gefið sér tíma með börnunum.
Við munum gera okkar besta til að tryggja að skólastarf verði sem eðlilegast en óneitanlega hefur þetta sett strik í reikninginn, því verður ekki neitað.
Við gefumst þó aldrei upp og munum að að öll él styttir upp um síðir.
Mínar allrabestu kveðjur
Maggi.....
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |