Víkurskóli Vík

Um skólann Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Sameinaður Tón-, Leik- og Grunnskóli er í Vík í Mýrdal og heitir Víkurskóli. Nemendur eru úr þorpinu og sveitinni vestan og austan Víkur. Skólahverfið er Mýrdalshreppur. Leikskólanemendur eru 28 talsins og starfsmenn eru sex. Í Tónskólanum eru 38 nemendur og tveir starfsmenn. Grunnskólinn er samkennsluskóli með 72 nemendur í fyrsta til tíunda bekk á aldrinum 6 til 15 ára. Við Grunnskólann starfa 17 manns.

 

Skólastjóri er Magnús Sæmundsson, með honum starfa þrír deildarstjórar: Anna Björnsdóttir (grunnskóladeild), Halla Ólafsdóttir (leikskóladeild) og Kristinn J. Níelsson (tónskóladeild)

 


Merki skólans

er sett saman af litum regnbogans og Reynisdröngum. Það er vísun í að Víkurskóli byggir á traustum grunni þar sem gjöful og fögur náttúra skapar umgjörð um skapandi stofnun sem leitast við að koma til móts við fjölbreytt litróf manneskjunnar í leik og starfi.


gæði - gleði - gróska - gagn eru kjörorð skólans og marka honum framtýðarsýn

 

Mannrækt og umhverfi
Unnið er markvisst með samskipti, einstaklingsmiðað nám og skrefin sjö að Grænfánanum.
Skólinn er aðili að verkefni Lýðheilsustofnunar
Allt hefur áhrif, einkum við sjálf