| Starfsdagur 15. mars 2010 ! |
|
|
|
| Skrifað af: Skólastjóri |
| Föstudagur, 26. febrúar 2010 10:43 |
|
Á fundi Fræðslunefndar sl miðvikudag 24.2. var samþykkt að flytja til starfsdag á skóladagatali Víkurskóla. Starfsdagur sem vera átti föstudaginn 19. mars hefur verið fluttur til mánudagsins 15. mars. Þetta er gert með hliðsjón af undirbúningi árshátíðar grunnskólans. Þetta þýðir að mánudaginn 15. mars nk er starfsdagur Víkurskóla, tekur hann til allra deilda, grunnskóla, leikskóla og tónskóla og eru nemendur heima þennan dag. |



